- Kúlan
Þegar þú labbar inn á spítalan ertu með stóra fallega harða kúlu, en þegar þú labbar út af spítalanum ertu eins og blaðra sem hefur verið blásin upp þangað til hún er við það að springa og hleypt svo loftinu út.
Þó að barnið er komið út og þér finnst þú orðin svo grönn aftur líturu samt enþá út eins og þú ert komin 6 mánuði á leið.. þú ert samt ekki með þessa fallegu kúlu sem þú varst með, núna minnir hún meira á prumpuslím. - Fötin
Ekki fara henda meðgöngu fötunum strax í geymluna! því eins og kom framm áðan líturu enþá út eins og þú sért komin 6 mánuði á leið og ert ekki að fara passa strax í þröngu gallabuxurnar sem þú ert búin að vera bíða eftir að komast í! Og þegar þú kemst í gallabuxurnar er svo mikið skinn og maginn svo mjúkur að það leggst yfir buxnastrenginn!Mynd tekin af google - Kúkaði ég á mig?
Ég talaði ótt og títt um það við ljósmóðirina mína að ég væri mest hrædd við það að kúka á mig. Ég bjóst nú við því að hún myndi koma með einhverja lygi eins og vinkonur mínar ,,nei,nei líkaminn hreinsar sig svo vel(þú færð niðurgang) fyrir fæðingu að það kemur ekkert“…Nei hún sagði mér það að í nánast öllum fæðingum kúkar konan á sig því það er svo mikill þrýstingur en að ég myndi aldrei taka eftir þessu því þær myndu bara taka kúkinn og skeina mér strax!
Þegar það kom að fæðingunni var þetta reyndar það síðasta sem ég var að hugsa um. - Sársaukinn
Ég fæ enþá illt þegar ég hugsa um þetta! Fyrst þegar hríðarnar byrja er þetta ekkert svo vont.. allavega í minni reynslu.. svo verður þetta meira og meira og verra og verra! Glaðloftið var besti vinur minn, ég ætlaði ekki að fá mænudeyfinu en djöfull var ég fegin þegar ég fékk morfín sprautuna! Ég hugsaði þá að ég gæti þetta alveg, þetta mun vera ekkert mál! En þegar það var alveg að fara koma að því að ýta grét ég eftir mænudeyfingunni, morfíni eða einhverju verkjastillandi, en þá var það auðvitað orðið allt of seint.
Gleymiru sársaukanum strax þegar þú færð barnið í hendurnar? NEI, guð nei! En það gerist með tímanum. Olla er orðin 10 vikna núna og minningin um sársaukan er alltaf að verða daufari. - Skoða klofið.
Ég held að á þessum 3 sólarhringum hafi fleirri skoðað og komið við klofið á mér en búa í bænum mínum. Mér fannst ég alltaf vera með fæturnar í sundur og þegar ég var að rembast held ég að það hafi 3 eða 4 í einu verið að horfa á vinkonuna. - Sængukvennagrátur
Vinkona mín sagði mér fyrst frá þessu þegar ég var ólétt, var ekki alveg að trúa henni að þetta væri til, ég hafði bara heyrt um fæðingarþunglyndi. En ég fékk sko að kynnast þessu, ég var grenjandi yfir öllu, hvað hún væri falleg, hvað heimurinn væri ljótur, að ég væri ekki búin að læra festa bílstólinn hennar.
Silli náði myndbandi af því daginn áður en hann var að fara vinna aftur sem mig langar að sýna ykkur.
Nei þetta er ekkert djók, mér í alvöru leið eins og hann væri að yfirgefa mig og 5 daga gamla barnið okkar því hann var að fara í vinnuna, hahah! Ég grét svo mikið að það endaði á því að hann þurfti að fá að vinna bara hálfan daginn.
- Allt í klessu.
Ég í alvöru hélt það að þegar barnið væri komið væri þetta bara búið, að þá liði mér bara eins og áður en ég varð ólétt! Ó hvað ég hafði rangt fyrir mér! Djöfull var vont að bara setjast upp í rúminu, hvað þá að labba! Það var eins og brjóstin á mér væru að ýta svo fast á rifbeinin að ég ætti erfitt með að anda. Og ástandið þarna niðri? Mér leið eins og allt væri í algeri klessu! Ég hef ekki enþá þorað að kíkja þarna niður. - Slímtappinn
Hvernig lítur hann út.. til að vitna í vinkonu mína þegar ég spurði hana að þessu þá er þetta eins og þú hafir snýtt þér hressilega í klósettpappír mð kvef. Mjög smekklegt er það ekki? En ekki nóg með það að það komi þarna slím úr píkunni þinni sem minnir á hor þá geturu misst slímtappan nokkrum sinnum. - Tilfinningin
Þrátt fyrir að vera ógeðslega sveitt, nýbúin að ýta þessu litla barni sem virtist vera svo ótrúlega stórt á meðan rembingnum stóð yfir, þrátt fyrir allt slímið, blóðið, kúkinn? er þetta svo yndisleg tilfinning, þú varst jú að fá eitt besta hlutverk í heimi, að vera foreldri! Hjartað þitt mun stækka um helming og þú upplifir ást sem þú vissir ekki að væri til!
Eftir fæðingu

You must be logged in to post a comment.