Í núna nokkur ár hef ég átt í miklum erfiðleikum með að byrja elska líkaman minn. Eftir marga matarkúra og æfingarplön var hugurinn á mér kominn í vítahring sem ég þurfti hjálp við að komast úr.
Fyrir nokkrum mánuðum byrjaði ég að fylgjast með Ásdísi Ingu á Instagram og varð strax heilluð af jákvæða viðhorfinu sem hún hefur. Þegar ég sá að hún var að byrja með BETA hóp á jathjalfun.is , sem hjálpar konum að brjótast úr þessum vítahring sem ég var komin í, tók það mig innan við 5 sekúdur að skrá mig.
Ég fékk það verkefni að skrifa bréf frá líkamanum mínum til mín, guð minn góður það er bara ein vika búin af 16 en mér líður eins og ég sé helmigi léttari. Ég mæli mikið með því að þið fylgið Ásdísi á Instagram (asdisih) og hlakkar til að deila með ykkur árángurinn sem ég veit strax að ég á eftir að sjá, ekki bara líkamlega heldur á andlegu hliðinni líka.
Elsku Saga. Ég veit þér finnst erfitt að horfa á mig, ég veit ég er ekki eins og ég var eða eins og þú vilt að ég sé. Við höfum farið saman í gegnum ótrúlegustu hluti saman, við höfum saman komið tvemur börnum í heimin, við höfum saman verið í okkar versta formi og okkar besta formi. Ég vill að þér líði vel, að þú þurfir ekki að skammast þín fyrir mig, að þú getur orðið stolt af mér aftur. Það er svo mikið sem ég vildi að ég gæti sagt þér en á sama tíma veit ég að þú myndir lítið hlusta á það. Ég gat ekki gert eins mikið og ég vildi eftir fæðinguna og ég veit þú sérð það á mér, en ég reyndi mitt besta og mun halda áfram að reyna mitt besta ef þú hjálpar mér við það. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að ganga í gegnum báðar meðgöngurnar með þér, en eins og það tók á sálina þína að sjá mig breytast, þá tók það líka á mig. Ætli ég sé kannski ekki líka smá sár út í þig, því það var ég sem var með þér í gegnum verkina á meðgöngunni og ég sem breytti mér svo við gætum gengið með börnin. En þrátt fyrir allt þá gefst ég ekki upp á þér þó svo þú ert að gefast upp á mér. Afhverju eigum við endalaust í þessu ástar og haturssambandi? Ef ég stend mig illa þá þolir þú mig ekki, en ef ég send mig vel þá elskar þú mig. Ef ég er búinn að standa mig vel í smá tíma þá verðlaunaru þig með sætindum en þolir mig svo ekki fyrir það. Þegar þú lítur í spegil langar þér að gráta og já stundum grætur þú. Þú ert ekki ein, ég græt með þér því ég vill ekki vera það sem veldur þér vanlíðan. Stundum held ég að sama hvað ég eigi eftir að gera þá verður alltaf þetta haturssamband á milli okkar. Því þú berð þig alltaf saman við aðra, eða hvernig þú varst áður en við gengum með börnin. Þegar þú nærð markmiðinu sem við setjum okkur saman, þá er það ekki nógu gott, svo við setjum okkur annað stærra markmið. Prufum kannski nýtt æfingar prógram, nýjan matarkúr, ný fæðubótaefni eða nýjan fatnað sem á að grenna mig. Ég veit ég er ekki eins og vinkona þín, eða fólkið sem þú ert að fylgjast með á Instagram, ég er kannski ekki með jafn gott þol eða í jafn góðu formi en ég er hérna fyrir þig. Þetta er ekki slagur sem ég einn get unnið, já eða þú ein, við gerum þetta saman og vonandi einn daginn getum við aftur orðið eins og við vorum. Ég vona og veit að þú vonar það líka, að einn daginn getum við komist úr þessum haturs vítahring sem við erum komin í. Ég vill gefa þér loforð en vill þá að þú reynir að gera dálítið fyrir mig. Ég vill að þú reynir að hafa meiri þolinmæði fyrir mér, ég vill að þú takir næstu vikur og reynir að finna einn góðan hlut við mig og einblínir á hann í staðin fyrir gallana. Ég vill að þú reynir þitt allra besta í að fara ekki í öfgar, hvort sem það snýr að óhollum eða hollum mat sem og æfinum. Í staðin lofa ég þér því að ég mun ekki gefast upp á þér og standa með þér í þessu fallega ferli sem við erum núna að ganga í gegnum að byrja elska hvort annað upp á nýtt. Sama hve erfitt það mun vera.
Ég er alveg einstaklega þakklát og stolt af líkamanum mínum, líkt og við ættum öll að vera. Spáið aðeins í því hversu magnaður hann er…
Á síðustu tvem og hálfu ári hef ég gengið tvö börn. Ég er með slappa húð á maganum og brjóstunum, nóg af aukakílóum (skv. BMI staðli) og feikinóg af slitum svo eitthvað sé nefnt. Þetta er að sjálfsögðu ekki einu skiptin sem hann hefur gengið í gegnum eitthvað því jú ég hef gengið í gegnum allskonar líkamlegar breytingar á mínu æviskeiði líkt og við öll svo að sjálfsögðu hafa orðið breytingar, þó barneignirnar hafi án efa leitt af sér drastískustu breytingarnar.
Það koma að sjálfsögðu tímabil og dagar inn á milli þar sem að ég er ótrúlega sár yfir lausu húðinni á maganum mínum sem lafir, eftir að hafa fætt Maríus þá hefur mér ekki tekist að losna við hana (það er svona þegar bumban birtist á innan við mánuði frá engu yfir í að springa utan af 20 marka barni)
Ég á svolítið erfitt með að horfa á mig í speglinum suma daga, mér finnst ég einhvernveginn ekki vera ég, ég er svo allt öðruvísi en fyrir ári síðan (halló eðlilega samt ég var að eignast barn).
Mér fannst ég svo hryllileg fyrir ári síðan, alltof þykk og árangurinn af ræktarstandinu sást ekki nóg. Í dag er það formið sem ég nota sem viðmið því í dag sé ég hvað ég var flott.
Kannist þið ekki við að hugsa stundum „ég vil verða grennri“, „ég vil vera meira svona eins og hún eða hann“, „ég vil vera með stærri/minni rass/brjóst/læri/maga/hendur/fætur“, „ég vildi að ég væri með krullur“, „afhverju er ég ekki bara með slétt hár“ o.s.frv. en svo á einhverjum tímapunkti síðar horfa á mynd síðan á því tímabili og hugsa „ég skil ekki hvað ég var að hugsa með þessum órum mínum um annað“ Það er ég núna þegar ég hugsa til baka.
Þegar ég var yngri gerði ég æfingar sem áttu að minnka líkurnar á ennishrukkum og fór að gráta yfir stærðinni á lærunum mínum…ég var 10 ára, hversu klikkað er það.
Í dag veit ég þó að það er mikilvægt að vera þakklátur fyrir hverja hrukku, hvert grátt hár, slitin, slöppu húðina, örin og allt hitt. Þetta þýðir einfaldlega að ég er að eldast og lifa lífinu, þetta eru ummerki því til sönnunar og minningar um liðnar stundir.
Það eru forréttindi að eldast, það eru forréttindi að geta eignast börn, það eru forréttindi að … ég gæti talið endalaust upp en þú nærð þessu, svo takk, takk kæri líkami fyrir það að standa með mér í gegnum þykkt og þunnt, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og gerir og takk fyrir allar liðnar stundir, ég vona svo innilega að þær verði miklu fleiri!
Þið hafið kannski tekið eftir myndunum hérna í gegnum færsluna, þetta er ég á 2,5 ári, mér hefur fundist eitthvað að mér á þeim flestöllum en um daginn setti ég þær allar saman og hugsaði „nei andskotinn þetta er magnað! Líkaminn minn er magnaður og hann á skilið að ég sé þakklát fyrir hann og átti mig á því að þetta er ekkert spretthlaup, þetta er langhlaup og við erum öll sífellt að breytast, það er partur af lífinu – ég get ekki beðið eftir að sjá hvernig ég verð eftir ár“
Ég vona að þið séuð sammála mér hve magnaður líkaminn er og langar að biðja ykkur öll að staldra stundum við og þakka honum fyrir allt það magnaða starf sem hann vinnur.
Þó að það séu mörg ár síðan ég greindist með átröskun og ég sé löngu búin að „ná mér“ þá er þetta samt eitthvað sem mun fylgja mér alla ævi.
Ég hef alltaf verið frekar öfgafull manneskja, svona svart og hvítt, allt eða ekkert týpa. Annaðhvort legg ég mig alla fram eða bara ekki neitt. Þetta einkenndi hreyfingu mína á unglingsárunum og framhaldsskólaárunum. Annaðhvort fór ég út að hlaupa á hverjum degi eða ég sleppti því alveg. Annaðhvort fór ég í ræktina tvisvar á dag eða ég mætti aldrei. En ég pældi ekkert mikið í mataræðinu, borðaði bara það sem var í matinn í skólanum og heima hjá mér.
Þegar ég byrjaði í framhaldsskóla og flutti að heiman tók við tímabil hjá mér þar sem ég hreyfði mig ekki neitt og hugsaði ekkert um hvað ég setti ofan í mig. Mér leið illa andlega án þess að vita af hverju, og í staðin fyrir að vinna í því deyfði ég vanlíðanina með sukk fæði og áfengi. Ég veit það núna að ég glímdi við þunglyndi á þessum tíma og hefði þurft að fá viðeigandi aðstoð til að vinna í því. Eftir heilt ár af sukki og djammi fann ég loksins löngun til að taka mig á, en því miður ekki andlega samt heldur bara líkamlega. Ég hellti mér út í líkamsrækt og tók mataræðið alveg í gegn. Ég fór fljótt að sjá árangur og það hvatti mig til að halda áfram.
Hér var ég farin að sjá mikin árángur og þyrsti í enn meira
Ég æfði á hverjum einasta degi, oft tvisvar á dag, og var fljótlega komin á mjög strangt mataræði. Kílóin flugu af mér en þegar ég var komin í kjörþyngd þá gat ég ekki hætt, ég var orðin háð tilfinningunni sem fylgir því að léttast og grennast. Það veitti mér svo mikla vellíðan. Þannig ég hélt áfram að æfa og fór að telja ofan í mig hverja einustu hitaeiningu. Ég var á endanum hætt að hafa gaman af því að mæta í ræktina og þurfti að pína mig á æfingu. Ég var alltaf þreytt og alltaf svöng, mér var ískalt og þurfti að æfa í þykkri hettupeysu. Sama hvað ég hamaðist mikið þá svitnaði ég ekki einum einasta dropa, roðnaði varla í framan. Ég varð máttlausari og átti erfiðara með að lyfta sömu þyngdum og ég var vön að taka. Öll fötin mín voru orðin allt of stór og hárið fór að hrynja af mér. Mér datt samt ekki í hug að það væri eitthvað að, ég var bara ákveðin í að detta ekki aftur í sama gamla farið, ætlaði ekki að skemma fyrir mér og þyngjast aftur.
Ég reyndi að borða eins lítið af hitaeiningum og ég mögulega gat, lifði á eggjahvítum og kjúklingabringum, og ef ég „svindlaði“ og borðaði eitthvað sem ég „mátti ekki borða“ refsaði ég sjálfri mér með því að vera helmingi lengur í ræktinni og reyna að brenna burt þessum auka hitaeiningum. Ég var alltaf í úlpu inni, sat í skólanum í dúnúlpu með hettuna á hausnum og borðaði eggjahvítur úr plastboxi. Ég var búin að einangra mig félagslega því það komst ekkert að nema að æfa og telja hitaeiningar. Ég eyddi kvöldunum í að elda hafragraut og vikta í plastbox, steikja eggjavítur og skera niður gulrætur til að hafa í nesti. Ég svaf í ullarsokkum, joggingbuxum og hettupeysu, og átti erfitt með að sofna á kvöldin því ég skalf úr kulda, þurfti að nudda á mér tærnar og fingurnar til að geta sofnað. Ég var orðin svo skelfilega veik í hausnum en ég sá það ekki sjálf og hlustaði ekki á fólkið í kringum mig sem reyndi að segja mér það. Mér fannst ég vera ein og að allir væru á móti mér. Allir vildu láta mig fitna, og ég ætlaði sko ekki að láta það eftir þeim.
Ég hef aldrei verið jafn létt og á þessum myndum, en ég hef heldur aldrei verið jafn óhamingjusöm, og það er eitthvað sem ég þarf reglulega að minna sjálfa mig á.
Ég náði algjörum low point þegar ég fékk þá hræðilegu hugmynd að sleppa því bara alveg að borða og drekka. Ég komast að því að ég var grennst á morgnana og þandist svo út eftir því sem leið á daginn, þannig ég ákvað bara hreinlega að hætta að borða og drekka, til að vera með alveg sléttan maga (ég veit, hversu galið??!). Þarna var ég orðin svo andlega veik að mér var eiginlega alveg sama þó ég myndi deyja, ég vissi alveg að það væri ekki hægt að lifa án þess að borða og drekka, en tók samt meðvitaða ákvörðun um að hætta að borða og drekka. Þetta var hvort sem er ekkert líf hugsaði ég þarna. Ég laug að öllum að mér væri óglatt, að ég væri örugglega bara að verða veik, svo lá ég uppí rúmi undir sæng og horfði á veginn. Vildi ekki fara neitt eða gera neitt. Eftir nokkra daga af þessu ástandi fór mamma með mig á spítalann, þá var komin svo mikil ammoníakslykt af mér að allt herbergið angaði. Ég gat varla staðið í lapparnir, ég titraði og skalf og það ætlaði að líða yfir mig. Ég fékk næringu í æð og viðtal við lækni, komst að því að ég væri með anorexíu og þunglynd. Ég byrjaði á þunglyndislyfjum og þegar þau byrjuðu að virka þá fékk ég lífið mitt til baka. Ég öðlaðist aftur viljan til að lifa, og aðrir hlutir heldur en bara mitt eigið holdarfar fóru að skipta mig máli.
Hér var mér farið að líða miklu betur andlega og líkamlega, ég var farin að borða meira og lyfta þyngra og leið vel með að þyngjast og bæta á mig vöðvum
Leiðin til baka var ekki bein, ég hætti ekki bara allt í einu að vera með anorexíu, en ég vann í sjálfri mér, og með mikilli vinnu tókst mér að sigrast á þessum hræðilega sjúkdómi sem anorexía er. En þó held ég að þetta sé sjúkdómur sem maður sigrar kannski aldrei alveg, þetta fylgir manni alltaf að vissu leiti. Þegar ég varð ólétt af eldri dóttur minni fannst mér erfitt að þyngjast og sjá líkamann minn breytast, en ég var svo veik alla meðgönguna að ég gat ekkert hreyft mig og vegna mikillar ógleði var mataræðið ekki uppá marga fiska.
Hér var ég að „taka mig á“ eftir að ég gekk með eldri dóttur mína
Það var ekki fyrr en ég gekk með yngri dóttur mína sem mér fór að þykja vænt um líkama minn og lærði að meta hversu mikils virði það er að fá að ganga með barn, og hvað líkaminn er magnaður.
Hér var ég ólétt af yngri dóttur minni og leið mun betur með líkamann heldur en á fyrri meðgöngu
Í dag eru 6 ár síðan ég greindist með anorexíu og þetta er ennþá barátta, þó svo að ég hafi náð mjög langt. Ég þarf að minna mig á það á hverjum einasta degi að hamingjan er ekki metin í holdarfari. Ég þarf virkilega að hafa fyrir því að fara milliveginn á milli þess að hugsa of mikið um mataræði og hreyfingu, og að hugsa of lítið um það. Ég reyni að hugsa um mat sem næringu fyrir líkamann og sálina, og ég hreyfi mig fyrir vellíðanina sem fylgir hreyfingu, en ekki til að breyta holdarfarinu.
Hér eru nokkur ráð sem hjálpuðu mér að takast á við anorexíuna, en þetta er eflaust mjög persónubundið:
Að fá hjálp hjá fagaðilum var fyrsta skrefið hjá mér (læknar, sálfræðingar, næringarfræðingar o.s.frv.)
Að finna viljan til að losna við anorexiuna (þetta var að mínu mati erfiðasta skrefið, ég vildi losna við þennan skelfilega sjúkdóm, en samt ekki því ég vildi ekki fitna, en ef maður vill ekki laga ástandið þá mun það ekki lagast! Ég mæli með að fá hjálp frá sálfræðingi við þetta skref)
Að fylgja bara fólki sem lætur manni líða vel á samfélagsmiðlum, ekki fylgja fólki sem hefur neikvæð áhrif á líðan manns
Að lesa um body-positivity og self-love, og læra að elska líkama sinn
Að hugsa um mat sem næringu fyrir líkama og sál, en ekki sem óvin
Að stunda hreyfingu á réttum forsendum (vegna þess að manni langar það eða vegna þess að manni líður vel eftirá, en ekki vegna þess að maður „þarf“ þess)
Að tala um hvernig manni líður, ekki fela það
Að reyna að forðast öfgar í mataræði og hreyfingu (átak, megrun, svindl máltíð, nammidagur, allt svona getur triggerað átröskun)
Þú ræður yfir matnum, hann ræður ekki yfir þér !
Að mæla árangur í hreyfingu með einhverju öðru en kílóum og sentimetrum, reyna að hafa það að markmiði að lyfta þyngra, hlaupa hraðar, hoppa hærra o.s.f, en ekki missa x mörg kíló
Í lokin ætla ég að mæla með að fylgja Röggu Nagla og Ernulandi á samfélagsmiðlum, en það hefur hjálpað mér mjög mikið í minni baráttu að lesa pistla frá þeim og fylgjast með þeim.
Ég ákvað það fyrir einhverjum tíma síðan að hætta að leyfa tilkynningar frá hinum og þessum „öppum“ í símanum mínum og slökkti því á öllum tilkynningum nema SMS.
Ég sé ekki þegar að ég fæ skilaboð á facebook eða ef ég fæ snap, síminn titrar ekki í hvert skipti sem það er nýtt follow á instagram eða like einhversstaðar og þetta er rosalega mikill léttir. Ég gerði þetta fyrst til þess að finna fyrir minni truflun frá símanum þegar að ég eyði tíma með stráknum mínum en ég finn mikinn mun á þessu alls staðar. Í vinnunni til dæmis verður maður skiljanlega forvitinn þegar maður veit af tilkynningu af einhverri sort og langar að kíkja en forvitnin er ekki jafn mikil þegar þú veist ekki beint að það sé eitthvað sem bíður þín.
Nú er ég ekki að segja að ég sé fullkomin, ég tek alveg upp símann stundum þegar ég er með stráknum mínum annaðhvort til að athuga eitthvað, senda skilaboð, taka upp eða hvaðeina og það er líka allt í lagi. Ég er þó ekki alltaf að, mér finnst ég ekki ÞURFA að lesa öll skilaboð um leið og ég heyri ping eða titring í símanum, þetta má alveg safnast saman og ég þarf ekkert að vita af því fyrr en að ég athuga það hvort eitthvað sé.
Mikið af mínu lífi fer fram í símanum og mér fannst ég ná að stjórna því miklu betur þegar að ég réð því hvenær ég tækist á við það sem þar er. Skólinn, vinnan, bloggið, samfélagsmiðlar, vinirnir, nánast öll samskipti af öllu tagi fara fram í símanum eða tölvunni en ef fólk virkilega þarf á mér að halda út af einhverju áríðandi þá svara ég alltaf símanum og fyrir mér ætti það að vera einu tilkynningarnar sem birtast á skjánum, símhringingar og SMS.
Ég mæli svo innilega með því að þið takið ykkur sem flest til og slökkvið á tilkynningunum, ef virkilega þarf að ná í mann er alveg hægt að hringja bara eða senda skilaboð!
You must be logged in to post a comment.